Tíst í BíBí
átakshringur frá 6/6 06
22.05.2007 19:20:07 / bibi

JÁjájájá..........ég veit

það er orðið allt of langt síðan ég bloggaði seinast, viðurkenni það fúslega hér með og biðst innilega afsökunar á því. Hef bara hreinlega ekkert haft að segja, þeir sem aftur á móti hafa áhuga á því t.d. hvað "manninn" var stór í bleyju Stubbsins vita það hér með að hann var ssstttttttttttóoooooooor. oj bara. Hann er nú hættur á pensilinskammtinum stór og vonandi heldu hann sér hressum. Sveskjan fór í smá aðgerð(fæðingarblettsremoval) og þvílíku öskrin og lætin í saumatökunni sem framkvæmd var í hjónarúminu í dag. Hef bara aldrei upplifað annað eins, fólk heur örugglega haldið að ég hafi hengt barnið upp á kjötkróka og sveiflað honum í hringi. Þega upp var staðið var þetta svo ekki neitt neitt og sviti og tár til einskis. Hann var nú frekar skömmustulegur eftir þetta allt saman og lét sig fljótt hverfa á snookeræfingu ;) heheheh Minnir mig á eina dömu (mig8|) sme lét öllum illum látum þegar pabbi ætlaði að sprenga svona vatnsbólu á tungunni á mér (þið hafið alveg örugglega einhverntíman fengið svoleiðis) og það endaði með því að ég steinlá hálfrotuð með gat á hausnum eftir að hafa barið honum í baðvaskinn í algeru histeríi. Var víst sjálf pínu hneyksluð á hegðun minni. verður bara að viðurkennast ;)

Heimsótti Anítu vinkonu í seinustu viku og sá litlu sætu þríburastelpurnar hennar. Guð hvað þær eru yndislegar. það gengur allt að óskum núna og þær eru sennilega á leiðinni heim eftir 3 vikur. Mikið verður nú gaman hjá þeim ;) ekki myndi ég nú samt vilja vera í þessum sporum, er alveg nógu þreytt á að berjast við stubbinn, hvað þá ef þeir væru 3. ;)

Hef voða litlu við þetta blogg mitt að bæta í bili . Er reyndar að gerast grasekkja á laugard. þar sem Ástin mín eina ætlar enn eina ferðina að yfirgefa mig og skela sér til ítalíu í nám í mánuð. Hef nú samt ýmislegt á prjónunum skal ég segja ykkur, Vonandi næ ég því öllu áður en hann kemur heim ;)

kveðja í bili.

Jokka skrifaði
Öss ég hef aldrei neitt að segja en blogga nánast daglega...kannski því ég á ekkert líf...hmmmm hahahaha ;)
Rósa skrifaði
Moetaz bróðir Marwans var einmitt að hafa orð á því að hann vonaðist eftir að Siggi hefði samband þegar hann yrði í Milano...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.