Tíst í BíBí
átakshringur frá 6/6 06
14.06.2007 00:36:23 / bibi

tilkynningaskylda ;)

jæja elskurnar mínar nú er ég loksins kominn inn á síðuna mína að blogga pínu. Er reyndar að verða vitlaus á þessu forriti, kemst ekki inn þegar ég vil, færslur týnast og ég veit ekki hvað.  Ég er því búin að taka ákvörðun um að hætta að blogga á þessa síðu, ætla að taka mér pásu í sumarfríinu og kanna aðrar bloggsíður og það sem þær bjóða upp á . Blogga því ekki meir næsta mánuðinn, eða svo ;) sorrý en ég set inn upplýsingar hér um allar breitingar sem verða, link á nýju síðuna og svo framvegis. 

Annars er allt bara í mestu makindum hér á bæ, er enn grasekkja og er nú farin að lengja töluvert eftir ástinni minni. hann kemur heim eftir 5 daga þannig að ´þessu einlífi fer að ljúka ;) Það var rétt hjá þér Rósa mín, hann var í útvarpinu á þriðjudag stóð sig bara svakalega vel, ég var allavega alveg að springa úr stolti yfir honum. Þeir sem hafa áhuga á að heyra geta farið hingað http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4331536 bendillinn á að vera svona ca. 4 cm frá endanum (þið fattið hvað ég á við) þ.e.a.s. ef þið viljið hitta ca. á viðtalið við hann í þættinum.

ddv er enn í fullum gír, er nú búin að vera 100% í næstum 3 vikur fyrir utan 2 daga þegar ég skrapp norður og líður mér mikið betur, er glaðari, orkumeiri og pissa eins og stóðhestur ;) er samt að sjá voða lítinn árangur á viktinni, bara búin að fara niður um 200gr. en það er í besta lagi, var reyndar dálítið svekkt en kannski er ég bara svona lengi í gang núna og skrokkurinn á eftir að fatta að hann á að brenna spikinu en ekki halda í það eins og dreki á gullfjalli ;)

Jæja elskurnar mínar, ég heyri í ykkur eftir mánuð eða svo þegar ég er farin aftur að vinna og komin með nýja síðu, þar til þá eigiði gott sumar, sólríkt og fullt af hamingju ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 17:19:12 / bibi

frí

komin í sumarfrí, ligga ligga lá................

er líka orðin grasekkja (ekki liggá lá :()

Stubburinn aftur orðin lasin og með niðurgang (ekki ligga lá)

fór á viktina í gær (ekki ligga lá)

byrjaði á ddv í gær ;) (ligga ligga lá.....)


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 19:20:07 / bibi

JÁjájájá..........ég veit

það er orðið allt of langt síðan ég bloggaði seinast, viðurkenni það fúslega hér með og biðst innilega afsökunar á því. Hef bara hreinlega ekkert haft að segja, þeir sem aftur á móti hafa áhuga á því t.d. hvað "manninn" var stór í bleyju Stubbsins vita það hér með að hann var ssstttttttttttóoooooooor. oj bara. Hann er nú hættur á pensilinskammtinum stór og vonandi heldu hann sér hressum. Sveskjan fór í smá aðgerð(fæðingarblettsremoval) og þvílíku öskrin og lætin í saumatökunni sem framkvæmd var í hjónarúminu í dag. Hef bara aldrei upplifað annað eins, fólk heur örugglega haldið að ég hafi hengt barnið upp á kjötkróka og sveiflað honum í hringi. Þega upp var staðið var þetta svo ekki neitt neitt og sviti og tár til einskis. Hann var nú frekar skömmustulegur eftir þetta allt saman og lét sig fljótt hverfa á snookeræfingu ;) heheheh Minnir mig á eina dömu (mig8|) sme lét öllum illum látum þegar pabbi ætlaði að sprenga svona vatnsbólu á tungunni á mér (þið hafið alveg örugglega einhverntíman fengið svoleiðis) og það endaði með því að ég steinlá hálfrotuð með gat á hausnum eftir að hafa barið honum í baðvaskinn í algeru histeríi. Var víst sjálf pínu hneyksluð á hegðun minni. verður bara að viðurkennast ;)

Heimsótti Anítu vinkonu í seinustu viku og sá litlu sætu þríburastelpurnar hennar. Guð hvað þær eru yndislegar. það gengur allt að óskum núna og þær eru sennilega á leiðinni heim eftir 3 vikur. Mikið verður nú gaman hjá þeim ;) ekki myndi ég nú samt vilja vera í þessum sporum, er alveg nógu þreytt á að berjast við stubbinn, hvað þá ef þeir væru 3. ;)

Hef voða litlu við þetta blogg mitt að bæta í bili . Er reyndar að gerast grasekkja á laugard. þar sem Ástin mín eina ætlar enn eina ferðina að yfirgefa mig og skela sér til ítalíu í nám í mánuð. Hef nú samt ýmislegt á prjónunum skal ég segja ykkur, Vonandi næ ég því öllu áður en hann kemur heim ;)

kveðja í bili.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 12:53:09 / bibi

veikindi

Stubburinn minn er búin að vera veikur alla seinustu viku en er nú loks á baravegi, þá tók náttúrulega rússínan við þannig að enn hangi ég inni vegna veiks barns ;) dæmigert gluggaveður úti þannig að ég er svo sem ekkiert að kvarta þannig séð. Það eina sem ég get kvartað yfir er að ég er búin með veikindadaga barna (7 talsins) fyrir þetta ár þannig að nú er eins gott fyrir þau að vera búin með pakkann fyrir þetta árið. Segi nú ekki annað.

Evróvision í sigtinu, ofurafinn (pabbi) er að koma suður og vera með okkur í hinu árlega fondue partýi þannig að það verður fjör. Eins var ég að sækja um í búseta á Akureyri. Hvert ætli það leiði mig??? það er stóra spurning dagsins ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 15:22:47 / bibi

flopp

íbúðin sem við vorum að pæla í , reyndist víst ekki vera upp á sitt besta og þó svo að við séum handlagin og höfum gaman af að framkvæma þá nennum við hreinlega ekki að fara að rífa allt af veggjum, lofti og gólfum, endurnýja eldhús og bað, skipta út öllum raf- og vatnslögnum, hurðum og gluggum, og já er ég að gleyma einhverju ??? jú það þarf víst líka að steypa útidyratröppurnar upp á nýtt. Gætum semsagt alveg eins fjárfest í lóð og byggt okkur lítið hús ;) einhverjar hugmyndir?????

Er annars að fara að vinna í kvöld, Stubburinn er búin að vera veikur síðan á sunnudagskv. og það verður víst bara að koma í ljós með svefninn minn á morgun, ef hann verður heima hjá mér þá verð ég víst að kríja mér þegar hann leggur sig og svo aftur annað kvöld fyrir næstu vakt. Reddast ekki allt á endanum? vonandi hressist hann samt fljótt svo við getum farið að fara út á meðal fólks. Einn kostur samt við að komast ekkert og þurfa að hanga heima er náttúrulega að ég er búin að laga til allstaðar hjá öllum, inní skápum og upp í hillum hvað þá meira. Það fór heill ruslapoki ( svartur) úr herbergi rússínunnar og stubburinn pakkaði smábarnadóti í heilann kassa sem fór niður í geymslu. Ein bón til allra sem hafa hugsað sér að gefa börnunum mínum eitthvað á næstunni ;) ekki gefa þeim bangsa!!!!!!!!!! erum að drukkna og engum má náttúrulega lóga ;) heheheheh.

nóg í bili. tata


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 23:16:28 / bibi

spennt

Er með augastað á lítilli íbúð á Akureyri, Pabbi skoðar hana fyrir okkur vonandi á morgun, ef ´hann gefur henni grænt ljós þá lítur út fyrir að við fjárfestum og verðum íbúðareigendur fyrir norðan líka. Guð ég er svo spennt, skelfilegt að vera svona ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 06:17:35 / bibi

tíhí

tíhíhí ætlaði aðeins að kíkja inn á síðuna mína og byðja gest nr. 94000 um að kvitta í ´gestabókina og viti menn, það var ég sjálf hehehehe alveg magnaður fjandi ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 07:32:38 / bibi

af okkur

Elsku pabbi minn, ég fæ þér seint þakkað fyrir alveg frábæra umönnun, alúð, þolinmæði og allt annað sem mér dettur í hug en tel ekki upp hér. Það eru sko ekki allir afar sem láta plata sig í heila vikupössun á 3 terroristum á meðan foreldrarnir flýja land ;) Ég sé á skrifunum að það hefur meira en lítið gengið á hjá ykkur og má víst kallast gott að þú hafir komist heill frá þessu öllu saman, ekki nema furða að þú hafir ekki látið sjá þig sunnan heiða síðan þá ;) heheheh. Enn og aftur elsku pabbi minn, takk kærlega fyrir okkur.

Það sem hefur á okkar daga drifið síðan að við komum heim er svo sem ekki margt og mikið. Reyndar skelltum við okkur norður um seinustu helgi og það snjóaði bara heilann helling, það sýnir heppnina í mér í sambandi við helgarval og norðurferðir því það er víst spáð ekkert smá bongóblíðu um þessa helgi ;) (fúlt maður) Við sáum nú minnst af vinum í þessum skottúr en aftur á móti reyndum við að beina spjótum okkar að nánustu ættingjum, tengdó og þess háttar og áttum við bara annsi góðar stundir saman. Krakkarnir áttu náttúrulega heiður skilið fyrir að hafa hagað sér tiltölulega skikkanlega í bílnum fram og tilbaka þannig að við foreldrarnir sáum ekkert allt of mikið eftir því að hafa rokið af stað með stuttum fyrirvara ;)

Veskið mitt er líka orðið þokkalega tómt eftir leiðangur seinasta miðvikudags en þá var haldið í Markið og Örnin og reiðhjól keypt handa sveskjunni og rússínunni, telst ég víst hafa sloppið með að hafa "BARA" 8| þurft að borga 54 þúsund. Eins gott að þau endist eitthvað í þetta sinn, en ég er hætt að kaupa hjól í Hagkaup því þau virðast bara lifa af eitt sumar og svo ekki söguna meir. Allavega gera þau það á mínum bæ.  Það má nefna það að börnin borguðu sjálf aðeins í hjólunum sínum í þetta sinn (reyna að koma inn einhverri ábyrgð hjá þeim, kannski, bara kannski ganga þau betur um hjólin þegar þau hafa sjálf þurft að mjólka veskið sitt ) restin af hjólunum var afmælisgjöfin þeirra frá okkur foreldrunum þannig að þá er það allavega yfirstaðið.

Jæja nóg í bili, er á næturvaktarhelginni minni þannig að ekki skelli ég mér norður núna ;)heheh


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 16:07:31 / bibi

Enn enn meira

Þegar þarna var komið var heimkoma foreldranna farinn að nálgast en spennan var meiri með það hvaða númer páskaeggin væru.Afi vissi ekkert um það en sagði að þau fengju allavega egg. Kvöldmatur bað refaveiðar skrímslaskammir þurr rass og tröllið fór að sofa:Skessan Afi og bráðum táningur spiluðu olsen veiðimann ofl. Skessan fór fyrst að sofa afi og Tán. horfðu á sjónvarp8|Afi setti í þvottavél það var að vísu ekkert nýtt lagaði smá til og fór svo að pukrast í eldhúsinu.Tán fór loksins að sofa og afi fór að leggja slóð fyrir páskaeggjaleitina.10 miðar um alla íbúð og á endanum eggin!:$Þegar þvotturinn var þveginn og hengdur upp fór afi að sofa.Snemma næsta morgun og þá er talað um snemma kom tröllið til afa og vildi fá þurran rass sem hann fékk og líka bað. Ekkert mál afi hefur nefnilega ekkert lyktarskin kemur sér vel stundum;)Grautur ný samfella hin var grautuð og klæddir kl6.30 horft á sjonvarp þá kom skessan hún horfði líka á sjónvarpið en vildi ekki graut beðið eftir Tán sem vaknaði fyrst eftir að leyfi fékkst frá afa til að vekja hann.Og þar með hófst páskaeggjaleitin upp á borð inn í skápa undir stóla og svo ofan í skúffu (litla skúffu):(:(Og þar voru eggin sem afi hafði verið að pukrast við að sjóða kvöldið áður merkt Tán Skessa og Tröll svipurinn á börnunum8|8|8| Afi tók eggin og afhenti súkkulaði eggin með fínu númeri og léttist þá brúnin:lol::lol::lol: Allir átu nú súkkulaði og lásu málshætti.Afi fór að búa um rúmin tröllið beið þegar rúmteppið var komið á skutlaði hann sér upp í rúm og skreið undir teppið þetta endurtók sig ca. 10 sinnum aðspurður sagðist hann vera að fela sig. Eftir að hafa þvegið 5 þvottavélar þurrkað og hengt upp skipt á rúmum og tæmt uppþvottavél tvisvar var klárt til að taka á móti foreldrunum en þau létu bíða eftir sér en þar sem allir voru nú loksins frískir ákvað afi að bjóða liðinu á rúntinn. Tröllið var klæddur uppá Skessan sá um sig tán og tröllið æddu út á undan skessu og afa sem ekki var kominn í skóna þegar þeir komu til baka TRÖLLIÐ HAFÐI DOTTIÐ Í POLL.!!!:$Afi fann einhver föt og svo var ekið út í óvissuna.Allt í einu var liðið komið niður í Nauthólsvík og út fóru allir að skoða sig um.Þarna var sjór 8) og Tröllið rauk þangað þar var hola í flæðarmálinu og þar settist hann niður Í HOLUNA:!: Jamm eitthvað var nú rölt um svæðið var almenn ánægja með það en tröllið kvartaði undan að hann væri skítugur afi var honum hjartanlega sammála.Heim var haldið tröllafötin sett í þvottavélina og svo var beðið eftir foreldrunum.Þvottavélin náði að klára og afi að hengja upp áður en þau birtust.Allt varð vitlaust og íbúðin á hvolf á ca 3 mín.Þegar allir höfðu heilsast og kysstst :lol:kom spennufallið Afi settist inn í sófa og sofnaði á staðnum (Eftir máli Þetta er frjálsleg frásögn minnið virkar ekki eins vel þegar álagið er mikið og allt rennur saman en þetta er eins og ég man og ætla að muna Takk fyrir traustið Afi)  

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 22:42:16 / bibi

Meira framhald

Skessan var sótt á skagann hú settist inn í bíl hvít í framan með plastpoka tilbúinn. Allt gekk þó vel heim og ekkert gubbað tröllið var að vísu ekkert á því að stóra systir væri lasin fannst þetta bara pjatt og fór það að vonum í fínu taugarnar á minni..Þegar heim var komið lagþist hún upp í sófa og svaf og gubbaði og drakk vatn og Powerate þangað til hún færði sig inn í afarúm.Á heimleiðinni var komið við á snooker staðnum og Tán sóttur kvöldmatur var eldaður borðaður allir nema skessan greyið.Eftir kvöldmat var horft á sjónvarp (snooker) og síðan refaveiðar og skrímslasæringar.Leið svo þetta kvöld við spila mennsku hjá Tán og afa. Spila mennska hafði reyndar verið reynd áður Afi Tán og Skessan spiluðu Monopoly sem endaði með að skessan offjárfesti og þurfti að veðsetja eignir það þótti henni ekki gott dró sig út úr leiknum með þeim orðum að ALDREY AÐ EILÍFU MUNDI ÞAÐ HVARFLA AÐ HENNI AÐ SPILA SVONA HEIMSKULEGT SPIL OFTAR ÞAR SEM ÞETTA VÆRI BARA FYRIR HEIMSKINGJA!!!!!!!:frown: Þetta var útúrdúr. Nóttin kom og afi og tán fóru að soa.Afi var rétt sofnaður þegar tröllið kom og prílaði yfir hann og lagðist ofan á skessuna sem var ekki hrifin.Fljótt féll þó ró á liðið og tröllið var að festa blund þegar AFI ÉG ÞARF AÐ GUBBA panik hvar var fatan? frammi í stofu auðvitað afi hljóp málum var bjargað á síðustu stundu en við þetta færðist líf í tröllið hann las yfir systur sinni sem bar sig aumlega og sagðist lasin þótti honum það litlar fréttir og senni lega bara ýkjur og aumingjaskapur var því ekki vel tekið af sjúklingnum sem grét.Afi fór að semja sættir og hugga tókst það að lokum og sofnaði tröllið.Allt í einu kom Tán röltandi og stóð yfir afa um stund afi spurði er ekki allt í lagi og var svarað að það mætti alveg athuga það að svo mæltu skreið hann líka upp í og var þá farið að þrengja að afa. Tveim tímum síðar gafst afi upp ræsti tán og sendi hann inn í rúm og bar sjálfur tröllið í hans pláss.Það var gott að sofna  en vont að vakna kl.6 við Cartoon network á hærri nótunum og tröllið í panic við að reyna að lækka hljóðið en með puttann á rangri ör.:haha:Var síðan eldaður grautur og étinn. Skessan svaf næstum allan daginn en undir kvöld var hún orðin frísk og hafði þá verið lasin frá því hún fór upp á skaga nærri 3 daga. Tán var í sárum snooker lokaður og ekkert hægt að gera hann vildi ekki kannast við að hafa komið í heimsókn sagðist hafa sofnað í sínu rúmi og vaknað þar aftur svo ekkert bull.Tröllið horfði á sjónvarp á milli þess sem hann þurfti nýja bleyju var eitthvað slappur í maganum Þeir bræður fóru síðan út í garð og komu inn hálftíma síðar á mörkum ofkælingar vegna roks og rigningar.Framhald

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 21:54:19 / bibi

Framhald

Næstu dagar voru aðeins öðruvísi en lagt var upp með: Allir áttu frí í skóla /leikskóla. Skessan fór í heimsókn til bestu vinkonu sinnar afi og tröllið óku henni upp á skaga (Tán í snooker) skessan varð eftir ætlaði að vera í 3 daga.Tröllið og afi fóru heim að dunda þvo og laga til Tán kom heim þegar kvöldaði veðrið var leiðinlegt og ekkert gaman úti. Eftir kvöldmat var farið í að reka rebba undan rúminu og skömmu seinna var skrímslið tekið til bæna.Snemma !!!8|næsta morgun var farið á stjá tröllið og afi Tán svaf lengi afi eldaði graut tröllið borðaði.Dagurinn leið eins og venjulega nema afi var þreittur og lagði sig með tröllinu eftir hádegið ekki var sá svefn langur skessan hringdi grátandi afi ég er komin með gubbupest ég vil koma heim tröllið fékk að sofa út en þegar hann vaknaði var lagt í hann upp á skaga.Framhald:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 22:25:21 / bibi

Þau sem heima sátu

Jæja þá er kominn tími til að segja frá þeim sem heima sátu þegar Bíbí flaug á vetrarstövarnar heima voru táningurinn (bráðum) Skessan og litla tröllið sem ætluðu að passa Afa. Allt birjaði með að tröllið varð veikur með hita og allt hann var frekar slappur greyið en rölti umm allan sunnudaginn og borðaði ís Skessan hjálpaði afa  með ýmislegt þvotta og matseld táningurinn (bráðum) fór og spilaði snooker allan daginn allir fengu kvöldmat og dunduðu við sitt á eftir nema tröllið fór snemma að sofa. Hann vaknaði líka snemmma var þá frískur og heimtaði graut var sennilega svangur og borðaði mikið.Eftir graut fór hann með afa í leikskólann varð þar sjálfur eftir en sendi afa heim.Heima voru skessan og táningurinn að vakna og rífast smá.Tán  fór í snooker skessan og afi að versla skessan vissi sllt um innkaupin mamma keypti svona ekki þetta þetta er voða gott mamma kaupir það næstum aldrey(keyptum það) Um kvöldið held að við höfum borðað kjötbollur tröllið borðaði mest.Skessa og Tán horfðu á sjónvarp tröllið og afi fóru á refaveiðar það var nefnilega kominn refur undir rúm það var ekki hægt að sofna með hann þar.Tröllið og afi lágu lengi á maganum og potuðu undir rúm með kústi til að reka rebba burtu það tókst að lokum og var þá ráðist í það að fara að sofa það tókst ekki strax því nú birtist skrímsli nokkurt í bóli rebba.Þarna urðu læti þegar afi og skessan sem kom á vettvang skömmuðu grey skrímslið undan rúminu og ráku það heim til sín.Þetta átti síðan eftir að endurtaka sig næstu kvöld.Framhald.

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 07:24:20 / bibi

seinni hluti, seint um síðir

jæja daginn eftir siglinguna á Níl var undirskriftinn, semsagt fyrsti í brúðkaupi. sem fer þannig fram að Rósa og Marwan skrifa nafnið sitt í ákveðna bók sem einhver skrifari frá ríkinu eða eitthvað svoleiðis kemur með og er það allt vottað og staðfest og helmikið sagt sem ðég skildi nú mest lítið af, en þegar þau settu svo upp hringana og kisstust þá áttaði ég mig nú á því að þetta var nú bara hin eiginlega gifting sem fram fór í stofunni heima hjá foreldrum Marwans. En gitingin tekur víst ekki gildi fyrr en eftir að búið er að halda veilsu samkvæmt þeirra sið. Ég flóðgrenjaði náttúrulega eins og ég geri alltaf, ætlaði bara ekkert að hætta ;) frekar svona halló, með málinguna niður á kinnum , en só what ;) Yfirleitt fer þessi athöfn fram heima hjá forledrum brúðarinnar skilst mér, en skiljanlega var það ekki hægt í þessu tilfelli, ég er hrædd um að ættingjar Marwans hefðu ekki komið lifandi frá páskahretinu sem mér skilst að hafi geisað hér heima. Á Föstudeginum var svo tiltökulítið um að vera hjá okkur hjónunum framanaf. Reyndar höfðum við keypt okkur nýja giftingarhringa úr skíragulli, í gullbúðinni og fengum þá afhenta þarna um kaffileitið og því fannst okkur tilvalið að setja þá upp. Þegar að við giftum okkur á sínum tíma vorum við ekkert sérlega fjáð og því voru gömlu hringarnir okkar úr silfri (alltaf svartir)og frekar mikil pjátur, eftir athöfnina hjá sýslumanninum fórum við og héldum upp á daginn og fengum okkur hamborgara á Bautanum. Í þetta skipti pönntuðum við okkur samloku upp á herbergið og settum upp nýju hringana okkar þar, skáluðum í vatni og höfðum það kósí ;) Þetta má náttúrurlega ekki vera allt of grand heheheh. Um kvöldið klæddum við okkur svo upp á og örkuðum út í hótelgarðinn þar sem voru dúkuð borð og flottheit, helligur af gestum og bara frábær veisla í alla staði. Rósa var náttúrulega alveg himnesk í hvíta flotta brúðarkjólnum sínum, með slör og alles og Marwan í svörtum smókíng. Eg þarf nátturulega ekkert að segja frá því að ég náttúrulega flóðgrét þarna enn eina ferðina, þau voru svo falleg og hamingjan geyslaði alveg af þeim. *snuff* Veislan stóð fram á nótt, en við íslendingarnir enduðum inni í brúðasvíðu með nýbökuðu hjónunum og fylgdumst náttúrulega spennt með þegar þau oppnuðu brúðargjafirnar sem við fluttum með að heiman.  Vorum frekar þreytt þegar vi skreyddumst heim um 3 leitið;)

seinasti dagurinn okkar í Kairó var síðan enn eitt ævintýrið þar sem að móðurbróðir Marwans bauð okkur öllum í heimsókn heim til sín. Hann býr hreynlega í höll með sundlaug í garðinum og alles, sennilega telst hann frekar mikið efnaður á Egypskan mælikvarða, ég skal ekki segja en þetta var allavega mjög flott og þau hjónin alveg einstaklega gestrisin. Maturinn flóði um allt sem fyrr, ekki skorti kræsingarnar og áttum við öll mjög notalegan dag saman þarna úti í garði.  Um kvöldið pökkuðum við svo niður í töskurnar og lögðum af stað í 20 tíma ferðalega heim, en það tíok ferðin frá hurð að hurð.

Ég o sennilega kallinn minn líka vorum alveg undin þegar við komum heim daginn eftir og krakkarnir föguðu okkur með páskasúkkulaði út á kinn og æsing ;)

Erum svo búin að vera að jafna okkur smám saman á þessu öllu og átta okkur á hvað í rauninni gerðist ævintýravikuna okkar í Kaíró. Munum gleyma henni seint ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 07:32:15 / bibi

ferðasagan

hún verður nú ekki sérlega löng þar sem varla er hægt að lísa öllu því sem við sáum í ferðinni okkar til Kairo. fyrsta daginn æddum við af stað í skoðunarferð með Henry egyptafræðingi sem var alveg eldhress og eldklár guide. Hann var fljótur að pikka upp "koma svo!!!" og notaði það óspart á okkur íslensku túristana þessa tvo daga sem hann túraði um með okkur. Við sáum fyrir það fyrsta PÍRAMÍDANA sem komu mér svakalega á óvart bæði hjvað varðaði stærð og orkuflæði og ens var ég voða hissa á því að þeir voru nánast inni í miðri borg ;) en svona er þetta  víst þeir voru einu sinni langt í burtu, er það ekki? Svo sáum við alskonar risastórar styttur og mynjar um Ramses 2. við fórum og skoðuðum  teppaskóla og ég keypti lítið silkiteppi semég er mjög ánægð með (veit reyndar ekkert hvar ég á að hafa það ;)) Eins ´fengum við smá sýningu á því hvernig pappírus er gerður og ég keypti náttúrulega pappírus ;) Við fórum svo út að borða á fínan veitingastað og vorum annsi undin þegar heim á hótel var komið þar sem að lítil hvíld hafði verið á undan þessarri ferð og flug og annað á undan tók víst eina 20 tíma.

Dagur 2 fór einnig í skoðunarferðir þar sem við fórum meðal annars að skoða egypska safnið og við hjónin sáum múmíur "life" sem var svaka duló. Komið var við í ilmolíubúð (gerð) og ég keypti náttúrulega ilmolíur til að setja í bað, nudda,og fl. svo fórum við og skoðuðum einhverjar fleiri mynjar en ég var orðin svo þreytt að ég man ekki einu sinni hvað það var, á myndir einhverstaðar af því ;) og við enduðum í gullbúð með fullta af skartgripum og fíniríji og ég náttúrulega keypti gull ;) mætti halda að ég væri eitthvað áhrifagjörn hehehe;) Ég keypti 5 kartúshj sem eru svona egypsk hálsmen með nafni manns ritað í með híróglýfum sem sagt eitt á mann í familíunni, og svo endurnýjuðum við hjónin giftingahringana okkar. Fórum auðvitað út að borða aftur þennan dag og í þetta sinn var það á pramma á Níl, voða flott ;)

Dagur 3 var smá frídagur þar sem við sváfum fram yfir hádegi og lágum svo aðeins á sundlaugarbakkanum áður en við tókum okkur til og fórum á skemmtibát sem silgdi á Níl á meðan við borðuðum geðveikan mat og hlustuðum á ennþá geðveikari arabíska popptónlist (og þá meina ég geðveikt , ekki flott) Fín ferð, sérstaklega í hléinu á tónlistinni ;) Í þessarri ferð hittum við Marwan (brúðguman) í fyrsta skiptið en hún Rósa mín var nú búin að vera á flakkinu með okkur alla hina dagana. Hann er bara svaka fínn náungi og ég skil nú Rósu bara vel, gott val hjá henni ;)

verð að rjúka  í vinnu núna, skrifa seinni hlutann seinna hehehe;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 34